Ísland, Iceland

chansluts ♥ bringing the chans together ♥

Ísland, Iceland

Return
Leave these fields empty (spam trap):
Posting mode: Reply
(for post and file deletion)
9001 friends currently visiting!

Information

Rules   Contact   do not post list (DNP)

1. If a thread is locked and images are removed, reposting the media will result in a ban.

Support chansluts


No.14120 : Anonymous Stalker [2018-07-08 21:35] [Report] 1531100131156.jpg (364529 B, 1280x960) [YIS] [GIS] [SNAP]
364529 B

Frelsarinn.
(prófessor Sigmund Freud dr. scient.)
Eftir Jóhannes Birkiland

Í fordóma myrkur, Í fávisku lægð,
kom Freud með ljósið og daginn.
Sjá, alþjóðum veitti af sinni gnægð.
Og öllum hann bjó í haginn. -
Ég syng honum sólskinsbraginn!

Fyr heimskan og skinhelgin hræsninni varð,
sem hjálpræði, á kostnað hins unga ;
svo margt var þá höggvið í manndóminn skarð,
að metið fær engin tunga. -
Freud aflétti okinu þunga.

Hann opnaði sannleikans æðri heim,
sem auðvald og kirkja nam loka ;
sjá, allt varð að lúta eldinum þeim,
og undan varð hisprið að þoka,
sjálf kúgunin kæfð, sem í poka.

Að fegurð og holdfýsn ei forsmán er,
ef fá hennar ALLIR að njóta -
Það sannaði Freud, eins og sýna ber,
að sólgeislar myrkrið brjóta,
og hjörtu öll fullnæging hljóta.

Öll skáld hafa kveðið kærleikans óð,
um kyngi, sem ástin veitir. -
Þau helga Amor sín ljúfustu ljóð,
öll listin hann dásemdum skreytir,
því vetri í vor hann breytir!

Sjálf ástin verður ei alla tíð,
sem eltiskinn gárunganna,
því karlinn og unga konan blíð,
dýpst komast í unaðinn sanna -.
Það takmarkið sælla svanna!

Ó, nái, Freud, ljós þitt um löndin öll,
og líka um Íslands bygðir,
svo náttstaðin hverfi nornatröll,
með náfúlar rógsins lygðir,
þær vélanna viðurstygðir!

No.14122 : Anonymous Stalker [2018-07-09 16:10] [Report] []

>>14120 Vel kveðið Jóhannes!!!


Advertisements


Delete Post [ ]

Return | To top of page ^